Handahófskennd lykilorð á minnið með PAO
Sem maður með mikinn áhuga á upplýsingaöryggi, þá hef ég oft leik að því að ímynda mér ýmsar ógnir og leiðir til varnar gegn þeim ef að þær skyldu raungerast. Eitt mikilvægt tilfelli er: Hvað myndi gerast ef maður glatar öllum sínum áþreifanlegu eignum og endar á götunni eða álíka? Í þessu tilfelli þá glatast öll okkar gögn, jafnt stafræn sem skrifuð, nema þau sem við höfum lagt á minnið. Við viljum tryggja það að svarið við spurningunni sé að ekkert sérstakt myndi gerast og að við stóískt höldum lífinu áfram eins og ekkert hafi í skorist eins og Tortímandi sem var við það að birtast. Venjulega er hægt að geyma gögn í höndum þriðju aðila, en hérna tala ég í samhengi einstaklinga sem vilja hámarks öryggi þar sem þeir eru þeir einu sem geta haft aðgang að gögnunum. Þetta tilfelli kallar á dulkóðun gagnanna með handahófskenndu lykilorði sem er erfitt að muna án minnistækni. Ég tileinka þessarri grein þeim tilgangi þar sem ég útskýri mína útfærslu á [PAO](https://artofmemory.com/blog/pao-system/) minnistækninni fyrir lesanleg [ASCII](https://en.wikipedia.org/wiki/ASCII) tákn.